Fara beint í valmynd. Fara beint í efni.  
  • Forsíða
  • Forsíðan
  • Golf / GSD
  • Tilboð
  • Útilegukortið Tjaldsvæði
  • Ættarmót 2011
  • Bátur og veiði
  • Selsskógur tjaldsvæði
  • Fróðleikur
  • Til sölu.




Útilegukortið Tjaldsvæði


Tjaldvagna geymsla.
Við tökum á móti vögnum milli 10-15 sept.

Tjaldvagn  kr.35.000.-
Fellihýsi    kr .45.000.-
Hjólhýsi     kr 55.000.-
Músfrítt og rakalaust pláss

Frostfítt pláss.
Tjaldvagn  kr.45.000.-
Fellihýsi    kr .55.000.-
Hjólhýsi     kr 65.000.-

Tjaldsvæðið við Indriðastaði.





Leiðin að tjaldsvæði útilegukortshafa.


Gisting í 4 daga samfleytt samkvæmt samningi.

Veiðileyfi kr 500.- á stöng per dag.


Við höfum gert samning við Útilegukortið og tókum undir það tún hér fyrir neðan bæinn og eru allir velkomnir meðan plássið leyfir.

Útilegukortið gildir ekki í Selsskógi, sem er tjaldsvæði í landi Skógræktar ríkisins.




Horft niður að tjaldstæði.

 

Útilegukortið ehf. var stofnað árið 2006. Markmiðið með stofnun Útilegukortsins var að gefa íslenskum og erlendum ferðamönnum kost á því að ferðast um Ísland á ódýran og hagkvæman hátt með gistingu á tjaldsvæða um land allt eða eins lengi og tjaldsvæðin eru opin. Útilegukortið veitir eiganda þess, maka og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði en einungis má gista í fjóra sólarhringa samfellt í hvert skipti  á tímabilinu 2009.


Verðlisti Indriðastaða

Fyrir aðra en korthafa útileigukortsins.

Verð kr 1500.- á dag per pers.

Börn kr 500.-  með veiðileyfi.

Veiðileyfi kr 500.- per dag.


Tjaldsvæðið  við Indriðastaði  sem er í hinum gróðri vaxna og fallega Skorradal skammt frá höfuðborginni. 

Er það kjörinn áningarstaður fyrir ferðalanga sem ætla sér stutt en hafa gaman af ferðinni og njóta útiverunnar.

VIð Indriðastaði hefur verið opnaður glæsilegur 9 holu golfvöllur.   Hann er krefjandi fyrir golfáhugamenn og útsýnið frá honum yndislegt. Skorradalur er syðstur Borgarfjarðadala og er hann 28 km langur.

Skorradalsvatn fyllir upp mestan hluta dalsins og hægt er að veiða í vatninu á svæði Indriðastaða.  Skógrækt hefur verið í miklum blóma í dalnum enda á skógræktin í ítök í sjö jörðum og hafa fjölmargir eigendur sumarbústaða í dalnum verið duglegir að planta trjám að auki.    Fjölmargar gönguleiðir eru í dalnum má þar nefna gönguleið upp úr dalnum að Eiríksvatni,  að Hvalvatni, að Svartárkoti og alla leið niður í Þingvallaþjóðgarð.  Einnig er hægt að fara eftir götuslóðanum Síldarmannagötur sem liggur niður í Hvalfjarðarbotn.  Sú leið er vörðuð vörðum sem hlaðnar voru árið 1999.  Ganga um Síldarmannagötur tekur um fjóra tíma, en er hvorki erfið né hættuleg. 

Við tjaldsvæðið, sem er skammt frá bænum Indriðastöðum, er salernisaðstaða ásamt sturtu, þvottavél og uppþvottavaski.

Golf, veiði og göngutúrar er eitthvað sem hentar öllum eða bara láta tímann líða og lesa góða bók í fallegri sveit.

Rafmagn meðan pláss leyfir.

Wc.

Sturta.

Aðstaða til að þvo upp.



Ferðaþjónustan Skorradal sími 437-0066
indridastadir@indridastadir.is












 
                  

Verið ávallt velkomin í Skorradalinn.