Fara beint í valmynd. Fara beint í efni.  
  • Forsíða
  • Sumarhús til leigu
  • Hestarnir
  • Tilboð
  • Tjaldsvæðið 2 við Indriðstaði
  • Sveitaball 2011
  • Fréttir og veður
  • Tjaldstæði 1. Selsskógur
  • Fróðleikur
  • Húsdýrin




Tjaldsvæðið 2 við Indriðstaði


Tjaldsvæðið við Indriðastaði.

Bara fyrir hópa 30 -150 manns





Leiðin að tjaldsvæði.

Tjaldsvæðið Indriðastaða er aðeins fyrir ættarmót.

Ef þú ert á leiðinni í Skorradal  skaltu skoða " Tjaldstæði 1 " Selsskógur hérna á síðunni.





Horft niður að tjaldstæði.

 

Tjaldsvæðið  við Indriðastaði  sem er í hinum gróðri vaxna og fallega Skorradal skammt frá höfuðborginni. 

Er það kjörinn áningarstaður fyrir ferðalanga sem ætla sér stutt en hafa gaman af ferðinni og njóta útiverunnar.

Skorradalur er syðstur Borgarfjarðadala og er hann 28 km langur.

Skorradalsvatn fyllir upp mestan hluta dalsins og hægt er að veiða í vatninu á svæði Indriðastaða.  Skógrækt hefur verið í miklum blóma í dalnum enda á skógræktin í ítök í sjö jörðum og hafa fjölmargir eigendur sumarbústaða í dalnum verið duglegir að planta trjám að auki.    Fjölmargar gönguleiðir eru í dalnum má þar nefna gönguleið upp úr dalnum að Eiríksvatni,  að Hvalvatni, að Svartárkoti og alla leið niður í Þingvallaþjóðgarð.  Einnig er hægt að fara eftir götuslóðanum Síldarmannagötur sem liggur niður í Hvalfjarðarbotn.  Sú leið er vörðuð vörðum sem hlaðnar voru árið 1999.  Ganga um Síldarmannagötur tekur um fjóra tíma, en er hvorki erfið né hættuleg. 

Við tjaldsvæðið, sem er skammt frá bænum Indriðastöðum, er salernisaðstaða ásamt sturtu og uppþvottavaski.

Veiði og göngutúrar er eitthvað sem hentar öllum eða bara láta tímann líða og lesa góða bók í fallegri sveit.


Ferðaþjónustan Skorradal sími 437-0066
info@indridastadir.is












 
                  

Verið ávallt velkomin í Skorradalinn.