Fara beint í valmynd. Fara beint í efni.  
  • Forsíða
  • Forsíðan
  • Golf / GSD
  • Tilboð
  • Útilegukortið Tjaldsvæði
  • Ættarmót 2011
  • Bátur og veiði
  • Selsskógur tjaldsvæði
  • Fróðleikur
  • Til sölu.




Til sölu.



Eignaland ehf

Kt.560908-1050
Indriðastöðum
311 Borgarnesi


Eignir til sölu..


Lóðin Skógarás 15.
Lóðin Skógarás 16.
Lóðin Hrísás 6.



Svæðið og skipulag þess.

Skorradalur er eitt rótgrónasta sumarbústaðasvæði landsins enda er þar að finna allt sem sumarhúsaeigendur sækjast eftir. Dalurinn er rómaður fyrir náttúrufegurð og veðursæld, enda er gróðurfarið fágætt og öll vaxtarskilyrði með eindæmum góð.

Á sólríkasta reitnum í Skorradal

Land Indriðastaða er í skjóli Skarðsheiðarinnar við vesturenda hins langa og mjóa Skorradalsvatn  sem er vinsælt til ýmissa vatnaíþrótta, bátsferða og veiða. 

Árið 2008 var opnaður fyrri áfangi golfvallar á svæðinu, sem hannaður er af Hannesi Þorsteinssyni.

Þá hefur verið í gegnum árin mikil uppbygging á sumarhúsasvæðinu og bjóðast þar lóðir með óviðjafnanlegt útsýni yfir dalinn, vatnið og umhverfið, allt frá Snæfellsjökli í vestri til Eiríksjökuls í austri. Bústaðirnir snúa einstaklega vel við sól og munu til dæmis njóta mun drjúgrar kvöldsólar ólíkt flestum öðrum íbúum Skorradals.

Stutt í golf og aðra skemmtilega dægradvöl á borð við vatnasport, sundlaugar, golf, gönguferðir, hestaleiga, klettaklifur auk þess sem skilyrði til skógræktar eru óvíða betri á Íslandi.           

Lóðirnar í Indriðastaðalandi eru frá ca 3.000 fermetrum Um byggingu húsa á reitnum gilda reglur samkvæmt samþykktu deiliskipulagi svæðisins:

Nánari upplýsingar veitir Jón Friðrik Snorrason í síma 898-4907

Einnig má senda  fyrirspurn á jon@eignaland.is

Sjá deiliskipulag Indriðastaðahlíðar


Smelltu á myndina til að stækka.

Hér má sjá nokkrar myndir af deiliskipulagi, þú getur sótt PDF skjöl með því að smella á myndirnar.















 
                  

Verið ávallt velkomin í Skorradalinn.