Fara beint í valmynd. Fara beint í efni.  
  • Forsíða
  • Sumarhús til leigu
  • Hestarnir
  • Tilboð
  • Tjaldsvæðið 2 við Indriðstaði
  • Sveitaball 2011
  • Fréttir og veður
  • Tjaldstæði 1. Selsskógur
  • Fróðleikur
  • Húsdýrin




Fréttir og veður


Það er ekki að marka þessa síðu ef hún spáir ekki góðu veðri:

http://www.yr.no/sted/Island/Vesturland/Indriðastaðir/langtidsvarsel.html


10 ágúst.

Þetta heldur bara áfram, vörn 30 og allt klárt.
Ótrúlegir dagar hérna og fólk að sóla sig á tjaldstæðinu allan daginn.


9 ágúst.
Það þarf sólarvörn 30 ef þetta heldur áfram sem horfir.
Endalaust gaman í Selsskógi og bara gott veður.
Þetta er spáin fyrir næstu daga og þá er betra að bera á sig vörn 30 :)


8 ágúst.

Þetta er búið að vera ótrúlegt siðustu daga.

Það er ennþá þannig og litur út fyrir að það ætli að vera þannig áfram.

Húrra fyrir vesturlandinu, svona á þetta að vera.

 




5 ágúst.
Það lætur sig ekki vanta góða veðrið hérna frekar en fyrridaginn.
14 stiga hiti og kl 9,30 logn og bjart.
Núna er bara að bíða eftir sólinni sem okkur var lofað og verðu það líklega ekki löng bið.
Þetta verður með betri helgum sumarsinns ef allt gengur eftir.
Talsvert er af fólki í Selsskógi en eitthvað er af lausu plássi og sumir ætluðu að fara í dag.

4 ágúst.

Þetta lítur vel út fyrir helgina, sól og 18 stiga hiti
Þetta segir    http://www.yr.no/sted/Island/Vesturland/Indriðastaðir/langtidsvarsel.html     og geri aðrir betur.
Sjáumst í sumarskapi á tjaldsvæðinu í Selsskógi.


2 ágúst.

Verslunarmannahelgin að baki og gekk bara vel þrátt fyrir mikkla rigningu á föstudagskvöldið.
En síðan er bara buið að vera gott veður og heitt, logn og heitt.
Næstu dagar eru svipaðir og næsta helgi lofar góðu.


31 júlí.

Hlítt og logn er búið að vera hérna alla helgin, smá rigning í gær og svo blíða.
Núna er hlítt 16 stig á mæli hérna á Indriðastöðum.
Brennan tókst vel í gærkveldi og mættu margir á þennan árlega viðburð eins og venjulega.
Tjaldagestir eru glaðir með helgina þrátt fyrir rigninguna á föstudag.

28 júlí.

Þetta er búið að vera glæsilegt kvöld, logn og bjart.
Helgin er bara fín, maður hefur séð það svartara og en verið svo  í bongó blíðu hérna meiginn við Skarðsheiðina.
Við erum bjartsýn hérna í dalnum og ætlum að hafa það fínnt um helgina, varðeldur og hestaferð.


26 júlí.

Síðustu dagar eru búnir að vera mjög góðir, dálítill vindur en hlítt.
En í dag kom rok og rigning sem er jú gott fyrir berin, það er farið að sjá á lynginu að berjasprettan lofar góðu.
Verslunarmannahelgin í ár verður með svipuðu móti, brenna og er veðurútlit bara hið sæmilegast þó eitthvað skorti sól eins og spáin er núna.
Við ætlum að vera með hesta á laugardag fyrir börnin í Selskógi til að leyfa þeim að fara á bak.
Það verður frítt að veiða fyrir tjaldagesti og sá sem fær stærsta fiskinn fær endurgreitt gistinguna.



22 júlí.
Sam blíðan héðan, hlýtt og bjart kl 10.02
Það er flott spáin fyrir daginn í dag og morgun.
Tjaldagestir kunna vel við þetta og eru að veiða og fara á hestbak.
Stærsti fiskurinn í sumar hérna sem ég veit um er bleikja ca 2kg sem veiddist við stífuna.


21 júlí.

Léttskyað og fallegt veður er í dalnum núna og kl 08.10
Dagurinn lítur vel út og ættu tjaldagestir að geta notið sólarinnar einn daginn enn.
Frábært að vera í útilegu á svona degi.





18 júlí. kl 09.21.
Það er sama blíðan hérna, 18 stig á mæli og vatnið er spegilslétt.
Góður dagur til að fara að veiða eða fara í reyðtúr
Heyskapur gengur vel á bæum hérna í dalnum.
Það er enginn stúrinn á svona degi, það er víst.




17 júlí.

Það er eins gott að nota sólarvörn í dag, 16 stig og kl 09.45
Það er frábært að vakna við svona aðstæður og eiga allan daginn fyrir sig.
Nú er gott að vera í útilegu og gera ekki neitt annað en sóla sig.
Verst að Sóla og KTM tröllið fóru í gær en þau voru búin að bíða eftir þessum degi í 1og1/2 sólahring.
Þetta unga fólk hefur enga þolinmæði.




16 júlí.

14 stiga hiti og farið að lægja kl 19.30.
Það hefur vantað sólin hérna um helgin, skýabakki hangið yfir Skarðsheiðinni.
En núna er hann farinn og sólin skín sem aldrei fyrr,  allir að grilla í kvöldsólinni í Selsskógi.
Veður spá næstu dag 15-18 stig og verður það bara dásamlegt.



15. Júlí.

17 stiga hiti, logn og kl bara 12.15.
Tjaldagestir léttklæddir og glaðir við leik meðan aðrir nota tækifærið og lesa góða bók.
Börnin una sér á nýu leiksvæði okkar sem hefur mælst vel fyrir.
Bændur farnir að slá og sveitin er full af lífi, kýrnar á beit og folöld skoppa og leika sér í haga.
Skoradalurinn verður vart fallegri en við svona aðstæður, lífið er alstaðar.
Njóttu þess að gera ekki neitt í sveitinni í góðum félgsskap.













 
                  

Verið ávallt velkomin í Skorradalinn.